Færsluflokkur: Bloggar
Í áttina að mörgæsunum
18.3.2015 | 14:26
Ég er búinn að vera skrifa bók sem ég er að fara láta frá mér.
"Í áttina að mörgæsunum" heitir hún. Bókin verður rafbók og er mín fyrsta bók. En eins og staðan er hjá mér þá er bókin hjá prófarkalesara og vona ég svo að ég fái hana von bráðar frá honum.
En svo er ég með aðra bók í smíðum eins og er sem ég hef einnig hugsað mér að koma frá mér sem fyrst.
Í áttina að mörgæsunum, fjallar um íslenskan (rithöfund) mann sem býr í Svíþjóð og er að takast á við sorgina, fortíðardrauga og hugarangur.
þessi saga fjallar kannski pínulítið um það hvernig við vinnum úr fortíðardraugunum og sorginni. þetta fjallar kannski líka um það um það hvað við getum gert til að takast á við vandamálin okkar, eða hvernig við vinnum úr þeim, v.e.s.
Seinni bókin (sem nú er í smíðum) fjallar um annað efni, þó hún sé að sumu leiti svipuð. ég á eftir að finna nafn á hana og er að vinna úr því einmitt núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skömmin yfir Evrópu
29.3.2013 | 14:31
Það fyrsta sem þér lesandi dettur í hug er EU? En svo er nú ekki, ekki enn alla veganna.
þannig er að fyrir nokkrum mánuðum var ég staddur í bókabúð í Svíþjóð, nánr tiltekið í Lundi. Ég hafði í hyggju að taka með mér nokkrar bækur heim til að kynna mér nýa stefnur og strauma í sænskri þjóðfélagsádeilu, frá þeim tíma ég hafði kvatt landið 1995, og komið heim úr námi.
þá fann ég þar bók sem vakti athygli mína. "Europas skam" Hvernig má maður þíða titil þessara bóka? Skömm Evrópu? eða óþveri Evrópu? Jú, kannski líkar mér betur við það nafn, sérstaklega þegar ég hef lesið megnið af bókinni. En bókin vakti mikinn ugga í mér, því hún fjallar um eina verstu óþokka sem fyrir finnast í Evrópu í dag. (eða í öllum heiminum) Það eru -öfga hægri samtök.
Lengi og vel hafði ég haldið að glæpasamtök, mafían eða öfga trúarhópar væru það versta sem hefur komið fyrir Evrópu. Lengi vel lá ég í þeirri trú að Slík samtök sem nýnasistar og nýfasistar, þjóðernissinnaðir sósíalistar og öfga hægri flokkar væru úr sögunni. en svo er nú ekki, Evrópa er enn full af slíkum óþokka samtökum sem virðast svífa einskis til að ná fram sinni stefnu og sínum markmiðum, það þykir kannski slá skökku við, því í flestum viðtölum eru þeir (líkt og KKK í USA) að berjast gegn glæpum sem eru í samfélagi Evrópu.
það þykir mér óvenjulegt þar sem þeir hafa framkvæmt fjöldann allan af hryðjuverkum, eins og Alkaita og Hamas samtökin og eru þeir engu betri en þeir trúarhóparnir, nánast verri. Sjá má t.d. hvað Anders B Breivik gerði. En hans er einmitt minnst í þessari bók.
Ef ég sný mér nú að bókinni sem ég er hér að fjalla um þá er hún skrifuð af Lisu Bjurwald, hún er blaðakona og rithöfundur og hefur verið að einbeita sér talsvört af slíkum hópum, ein hefur hún skrifað fleiri bækur sem fjalla um svipuð málefni og þessi bók.
Í gamni mínu hef ég tekið það Bessaleyfi og þítt nokkra kafla upp úr þessari bók, en hef ekki birt þær þýðingar opinberlega sökum þess að ég hef ekki birtingaleyfi höfundar eða útgáfunnar.
En ég var yfir mig hrifin af þeim aðferðum sem Lisa notar til að ná fram sannleikanum. Hún hefur t.d. hefur farið og heimsókn fórnarlömb og einnig hefur hún tekið mörg viðtöl við meðlimi úr þeim félagssamtökum nýnasista. hún er (eins og gefur að skilja) ekki hlutlaus þegar kemur að þessu efni heldur hefur hún beit sér fyrir því að berjast gegn þessari vá sem tröllríður heimsálfunni.
Það veit hvert mannsbarn hvernig komið er fyrir Grikkjum, hvernig þeir hafa þurft að búa við nánast hörmungar og verið nánast orðið að vanþróuðu ríki. þá var það eitt sem gerðist þar, þeir fóru að kenna innfiltendum um það sem hafði komið fyrir, ýmsir hópar fasista urðu stofnaður t.d. var stofnaður flokkur þjóðernissinnaíðasósíalista, (natonalsocialists)sem náði þó nokkrum árangri í kosningunum og komu sínu fólki inn. ÞVÍ MIÐUR GRIKKLAND! vil ég sega. þeir réðust á innfletendur sem höfðu stofnað fyrirtæki, opnað markaði. En þrátt fyrir það var engin skilningur fyrir því að einmitt var sá hópur að efla kjör landsins með vinnu sinni, en ekki öfugt.
En ég hef i hyggju að skrifa meira um þetta efni og koma því hér á framfari til að við sofum ekki á verðinum og látum slíka hópa vaða uppi með svívirðu, það er ekki fólkið sem gengur inn heldur er það forustan sem eitrar út frá sér.
Verum vakandi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rafbækur, spjaldtölvur og framtíðin
25.9.2012 | 21:17
Í þessari fyrstu grein minni hér á Blogg.is vil ég tala um rafbækur og spjaldtölvur.
Svo einkennilega vill til að ég er einmitt að fara gefa út mína fyrstu bók á næstu mánuðum.
Eitthvað hef ég látið yfiðfara hana, og í augnablikinu er hún hjá prófarkalesara, nú þegar þessi orð eru skrifuð.
Nú, þá kemur upp spurning, hvar á ég að látta gefa verkið mitt út? Ég hef setið yfir skriftum i nokkur ár, því fyrst var þetta bara áhugamál, svo fór ég að hafa meira gaman, og svo leit ég á handritið sem eitt af mínum sköpunarverkum. Ég fékk konu mína til að lesa yfir handritið, ég fékk vini mína og einnig hefur faðir minn eitt eintak undir höndum. (og tel ég sjálfur engan hafa eins mikið vit á bókmenntum og hann) flestir töldu þetta vera skemmtileg saga, en sumir eru harðir og telja þetta enganvegin vera útgáfuhæft. Vinur er sá sem til vamms segir, og hvað geri ég þá?
Ég fékk meira seiga synjun frá einu af virtu bókaforlaginum. En tek það fram að ég skil vel að útgefendur verða að hafa allan huga við það hversu gott hvert og eitt handrit getur orðið sem þeir fá í hendurnar, það er áættusamt að vinna sem bókaútgefanndi, hvað þá í svo litlu samfélagi eins og Íslandi? Mergur málsins var sá að ég þurfti að vanda betur til íslensku gerðarinnar og einstakar stafsetningarvillur fundust víðast hvar. Ég spurði þá hvort ég mætti senda honum handritið aftur um leið og prófarkalesari minn væri búinn að yfirfara stikkið, og það er meira en sjálfsagt.
Þá er röðinni komið að því að spyrja sjálfan sig hvað sé í boði.
Nú í vetur hafði ég gefið tengdarmóður minn þessa s.k. rafbók í gjöf ásamt konu minn. blessuð konan er mikill lestrarhestur, því er bóklestur hennar líf og yndi, nú getur hún eignast fjölda allan af bókatitlum á einni rafbók og lesið þegar hana langar, og burðast með bókasafnbið sitt í handtöskunni sinn.
Mér skilst að yfir 1000 bókatitlar komast yfir á eina rafbók, maður getur því rétt ímyndað sér hvað það sé stórt bókasafn.
En hvað mig varðar, þá gefst mér tækifæri til að gefa bókina mína út í rafrænu formi á emma.is. þetta er fyrsta skáldsagan sem ég gef út, og það mætti skilja þetta sem svo að nú væri komið einhverskonar uppgjör í mig. En það er nú ekki svo, því ég ætla ekki að henda frá mér handridi í ruslið eða stinga því ofan í skúfu, svo munu afkomendur mínir finna það eitthverntíman eftir mína daga. Ég er viss um að þessi skáldsaga eigi erindi til allra sem hafa gaman af góðum skáldsögum, þó ég segi frá sjálfur.
Ég hef það frá örum en sjálfum mér.
En þegar ég tala hér er um rafbækurnar og spjaldtölvurnar, þá hugsa sumir sem svo að þessi sem hér skrifar vilji útiloka innbundnarbækur og helst að pappír muni heyra sögunnitil.
það er alls ekki svo, því meira en nokkru sinni fyrr þurfum við á pappírnum að halda, pappírinn hefur þjónað okkur (mannkyninu) göfurlega í mörgþúsundir ára og því á hann sem slíkur virðingu skilið. þar sem ég mun (eflaust) koma bókinni minni út í rafrænuformi, þá mun ég líka láta prenta út nokkur eintök af bókinni minni, til að eiga og til að gefa vinum og vandamönnum.
Ég vil líka seiga að þetta yrði gott fyrir bókaútgefendur til að geta þá loksins gefið út ódýrir bækur og þá í leiðinni stækað bókamarkaðinn, ég vil að það komi fleiri bókaútgefendur eins og emma.is og bækur verða settar í rafrænt form og hver og einn bóka unnandi getur þá burðað með bókasafnið sitt hvert sem er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)